Nokia Medallion I - Hleðsla og afhleðsla

background image

Hleðsla og afhleðsla

Myndanisti I er knúið Li-Ion hleðslurafhlöðu.

Hafa ber hugfast að rafhlaða nær ekki fullum afköstum fyrr en hún hefur verið hlaðin og
afhlaðin tvisvar til þrisvar sinnum!

Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún
gengur úr sér. Þegar vinnslutími er orðinn áberandi stuttur er tímabært að kaupa nýja
rafhlöðu.

Aðeins má nota rafhlöður sem samþykktar eru af framleiðanda Myndanistis I og aðeins má
endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem framleiðandinn hefur samþykkt. Taka skal
hleðslutækið úr sambandi þegar það er ekki í notkun. Óráðlegt er að Myndanisti I sé tengd
hleðslutæki lengur en vikutíma þar sem ofhleðsla getur stytt endingartíma þess. Fullhlaðin
rafhlaða afhleðst sjálfkrafa með tímanum ef hún er ekki í notkun.

Sveiflur í hitastigi geta haft áhrif á hleðslugetu rafhlöðunnar.

Aðeins má nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð.

Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu.

Ef Myndanisti I er skilið eftir í miklum hitum eða kuldum, til dæmis í lokuðum bíl að sumar-
eða vetrarlagi, dregur það úr afkastagetu og endingu rafhlöðunnar. Æskilegast er að
rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15 ° C að 25°C (frá 59°F að 77°F). Myndanisti I með
of heitri eða of kaldri rafhlöðu getur orðið óvirkt um tíma, þó svo að rafhlaðan sé fullhlaðin.
Einkum hefur mikið frost áhrif á rafhlöður.

Ekki má fleygja Myndanisti I í eld!

background image

Copyright

©

2003 Nokia. All rights reserved.

16

Ef þörf er á að skipta um eða fjarlægja rafhlöðuna skal hafa samband við þjálfaðan
þjónustuaðila sem tekur það að sér. Reynið ekki að gera það sjálf. Fyrir umhverfisvæna
endurvinnslu skal hafa samband við þjónustuaðila Nokia eða kynna sér staðbundnar
reglugerðir um hvernig rétt sé að farga Myndanisti I (rafhlöðunni þar á meðal).

background image

17

Copyright

©

2003 Nokia. All rights reserved.