Nokia Medallion I - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald

Í Myndanisti I fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með.
Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að uppfylla skilmála ábyrgðarinnar og geta stuðlað
að betri endingu.

Alla aukahluti skal geyma þar sem börn ná ekki til.

Halda skal Myndanisti I þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið
steinefni sem tæra rafrásirnar.

Ekki má nota Myndanisti I á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar. Færanlegu
hlutirnir í því geta skemmst.

Ekki má geyma Myndanisti I á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu
rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.

Ekki má geyma Myndanisti I á köldum stað. Þegar það hitnar (upp að eðlilegu hitastigi)
getur raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna Myndanisti I. Meðhöndlun viðvaninga gæti skemmt það.

Myndanisti I má ekki henda, ekki má banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð getur
skemmt innri rafrásaspjöld.

Ekki má nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa
Myndanisti I.

Ekki má mála Myndanisti I. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í
veg fyrir að þeir vinni rétt.

Ef Myndanisti I vinnur ekki rétt skal leita til næsta viðurkennda þjónustuaðila Starfsfólk þar
aðstoðar notandann og sér um viðgerð ef þörf krefur.

background image

1

Copyright

©

2003 Nokia. All rights reserved.

Samhæfi við önnur tæki

Samhæfiskröfur til PC-tölva vegna Myndanistis I:

• Stýrikerfin Windows 2000 eða Windows XP

• IrDA-tenging

Samhæfiskröfur til síma vegna Myndanistis I:

• IrDA-tengi og stuðningur við sendingu og móttöku mynda um IrDA

Samhæfi Myndanistis I við eftirtalda Nokia-síma:

• Communicator 9210

• Communicator 9210i

• 7650

• 3650

• 6650

• 6220

• 7600

• 6600

• 3200

9356983 / Issue 1